Þann 28. júní til 5. júlí kemur drengja- og karlakórinn Syngedrengene frá Assens í Danmörku í heimsókn til Íslands. Þessi ca. 40 manna kór mun halda tónleika í Landakirkju í Vestmannaeyjum þann 30. júní, Selfosskirkju þann 2. júlí og í Grafarvogskirkju í Reykjavík þann 4. júlí. Að auki munu þeir taka þátt í messu í Hallgrímskirkju sunnudaginn 5. júlí.
Starfsemi Syngedrengene er sem kirkjukór í Vor Frue Kirke í Assens. Kórinn er með betri drengjakórum í Danmörku og eru mjög eftirsóttir til tónleikahalda. Hefur hann verið starfræktur síðan 1856 og heldur upp á 160 ára starfsafmæli á næsta ári.
Á þessari tónleikaferð, til Íslands mun Syngedrengene flytja efni með danskri tónlist frá árunum 1600 og fram til okkar daga. En efnisskráin er blanda af klassískri danskri og evrópskri tónlist, með áherslu á kirkjulega tónlist.
Einnig mun kórinn flytja tónlist heimsþekkta danska tónskáldsins Carl Nielsen, sem fæddist fyrir 150 árum síðan, bæði sálma og lög.
Fyrir utan dönsk verk, verða flutt þekkt klassísk kórverk frá endurreisnar tímabilinu og verk fram að okkar tíma svo sem: Palestrinas „Sircut Cervus“, César Franncks „Panis Angelicus“, Mozarts „Ave Verum“ og John Rutters „The Lords Blessing“.
Á milli tónleikahalda mun kórinn njóta þess að skoða landið. Þar á meðal: Gullna hringinn, fara í Ribsafarí við Vestmannaeyjar og skoða Reykjavíkurborg.
Vestmannaeyjar hefur sérstaka þýðingu fyrir 2 drengi úr kórnum, þar sem faðir þeirra er fæddur og uppalinn í Eyjum. En eldri drengurinn er einnig fæddur Eyjum og skírður í Landakirkju, þar sem kórinn mun syngja.
Tónleikarnir verða haldnir sem hér segir:
Þriðjudaginn 30. júní kl. 20.00 í Landakirkju, Vestmannaeyjum.
Fimmtudaginn 2. júlí kl. 18.00 í Selfosskirkju, Selfoss.
Laugardaginn 4. júlí kl. 18.00 í Grafarvogskirkju, Reykjavík.
Ókeypis aðgangur er á alla tónleikana.
UM SYNGEDRENGENE VED VOR FRUE KIRKE, ASSENS
Syngedrengene ved Vor Frue Kirke i Assens telur um 40 drengi og ungmenni. Starfsemi Syngedrengene er sem kirkjukór i Vor Frue Kirke í Assens. Kórinn hefur verið starfræktur síðan 1856 og halda 160 ára starfsafmæli á næsta ári.
Syngedrengene er einn af betri drengjakórum í Danmörku og er mjög eftirsóttur til tónleikahalda. Halda þeir tónleika víða um Danmörku og annað hvert ár ferðast þeir erlendis. Og í ár er stefnan tekinn á Ísland.
Kórinn syngur 4 radda eftir enskri fyrirmynd. Yngstu drengirnir syngja sópran, á meðan altröddin er sungin af falsettu herraröddum (kontratenórar).
Drengirnir byrja i kórskólanum i 3.bekk, en eftir eitt ár geta þeir byrjað i sjálfum kórnum. Æfingar eru 2-3svar í viku, með söngkennslu, radd þjálfun og tónheyrn. Taka þeir þátt í messu í Vor Frue Kirke, Assens.
Þegar drengirnir fara í mútur fá þeir áframhaldandi söngkennslu, eða þangað til röddin hefur náð þroska til að geta tekið þátt í herrahóp kórsins. Þá syngja þeir sem kontratenór, tenór og bassi.
Stjórnandi kórsins, Finn Pedersen, er organisti og söngstjóri við Vor Frue Kirke. Hann er menntaður organisti frá Den Kongelige danske Musikkonservatorium og er með framhaldsmenntun í kórstjórnun og barna kórsstjórnun.
Fleiri upplýsingar er að finna á ensku hér: https://syngedrengene.dk/summary-in-english/
Nánari upplýsingar : bilskirnir@os.dk +45 5129 0073 Ulla Schjørring